Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 34701
27.10.2009 09:56:33 / Lobbi

The Beckoning Silence - Klifurmynd

Frásögn af Eiger fjalli í Ölpunum og hversu víðsjárverð norðurhlið fjallsins er

http://www.youtube.com/watch?v=AmjJBu0xiwc&feature=PlayList&p=F87D044D5191B55D&index=0&playnext=1

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.10.2009 15:16:31 / Lobbi

Rústabjörgun 13.10.2009

Það verður hittingur hjá rústahóp kl 19:00 í Guajabúð, skilgreingin á óveðursbúnaði ofl.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2009 21:08:31 / Lobbi

Frábært nýliðapróf að baki

Jæja eru ekki allir að koma til eftir prófið?

Fyrir mína parta þá vil ég þakka fyrir frábært nýliðapróf, þetta gekk allt saman rosalega vel og skipulagið var frábært. Verkefnin voru skemmtileg, krefjandi og fræðandi. Þegar að ég kom heim í nótt búinn að vera vakandi í 45 tíma þá sofnaði ég með sælubros á vör.

Takk kærlega fyrir frábæra helgi kæru félagar

Kveðja
Lobbi

» 7 hafa sagt sína skoðun

25.09.2009 00:47:53 / Inger

....eitt enn !!!



 Ok skipulagsfríkið ég ver að koma einu að .... svo er ég hætt for good !!

  Semsagt, það vantar sjálfboðaliða til að bjóða í partýið á laugardaginn ef við náum að klára á skikkanlegum tíma. Kolla sagði að við ættum að sjá um það sjálf. Búumst semsagt ekki við að vera boðin neitt. :) 
Ég bý hjá mömmu og litla sys er 21 árs á lau svo hún er með vini sína, annars hefði ég glöð boðið !! 


 HVER BÝÐUR SIG FRAM ???

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2009 21:43:15 / Inger

Skyldumæting


 Hæ hæ 

 Allir sem ætla að fara í nýliðaprófið verða að mæta í gróu á fimmtudagskvöldið klukkan 20:00 þar sem farið verður yfir helstu atriði sem við þurfum að hafa í huga varðandi helgina.

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.09.2009 16:01:57 / Kristján

hvar getur hjálpað

hver getur lánað mér brodda, ísöxi, klifurbelti, 2 karabínur læstar, fyrir sunnudag

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2009 15:34:21 / Inger

UNDIRBÚNINGUR



  Jæja þá eru komin drög að undirbúningsæfingum fyrir nýliðaprófið sem hefst 25. sept. 

FIMMTUDAGURINN 10  SEPT KL 19:00

 1. hjálp - Kolla ætlar að koma og fara með okkur yfir helstu atriði. Kannski að við getum farið í eina æfingu eða svo ef vel gengur 

ÞRIÐJUDAGURINN 15 SEPT KL 20:00

Leitartækni. Pálmi ætlar að koma og fara yfir helstu atriði námskeiðisins. 

Við ætlum að hafa líka spottavinnukvöld þar sem farið verður yfir sig, tryggingar, síga yfir hnút ofl. 

Rötun, þar sem farið verður yfir áttavitann - Rústabjörgunar upprifjun ef Bjöggi hefur tök á því að koma ! 


 Að sjálfsögðu er ekki skyldumæting á þessi kvöld, meira bara hugsuð ef þið viljið rifja upp og læra betur til að verða kikk ass á prófinu :) 

Annars eru einu infoin sem við höfum um prófið er að lesa vel allar bækurnar , kunna ALLA hnútana og það sem við förum í hérna að ofan. 

 Svo væri gaman að enda þetta á einum hitting þar sem við mætum öll sem förum í prófið, til að hrista okkur saman og skapa góðan móral fyrir komandi geðveiki :) 
  
  Hlakka til að sjá ykkur öll á slöngubátanámskeiðinu, sem er skylda til nýliðaprófs, helgina fyrir nýliðaprófið. 

Ef einhver hefur eitthvað við þetta að bæta endilega geriði það, þar sem þetta eru bara hugmyndir nokkurra einstaklinga sem hafa verið að hittast í gróu. 

  Inger 

» 6 hafa sagt sína skoðun

31.08.2009 14:01:05 / Inger

Fyrsti fundur



 Sæl öll 

  Jæja núna er komin tími á fyrsta fund. Hann verður klukkan 20:00 í Gróubúð á fimmtudaginn næstkomandi. 

 Stjórnin fundaði um helgina og ættu því öll gögn um hverjir fá að taka nýliðaprófið og hvernig því verður háttað að vera komin fram. 

 Endilega reynum að mæta sem flest svo að við getum í sameiningu ákveðið dagsetningar fyrir æfingar og beðið þá sem eru okkur reyndari um aðstoð þar sem þarf. 


    Hlakka til að sjá ykkur 

   Inger 

» 7 hafa sagt sína skoðun

23.08.2009 18:11:05 / Inger

alvaran er tekin við, sumarið er búið

Hæ allir 

 Ég vona að þið hafið haft það gott í sumar og séuð tilbúin í frábæran vetur. 

 Komin er dagsetning á nýliðaprófið sem er eftir tæpar og fáar 5 vikur. Það er margt og mikið sem við eigum eftir að gera fyrir þann dag og tíminn er naumur ef við ætlum að rústa þessu prófi ! 

  Ég legg því til að við hittumst öll fljótlega og förum að skipuleggja hvernig við viljum haga undirbúning og æfingum fyrir stóra daginn :) 


       Hvað segið þið um þetta ??

» 8 hafa sagt sína skoðun

10.06.2009 22:54:25 / Andri Már E

fjölskylduhátið björgunarsveitarinnar

ætla bara að láta ykkur vita að helgina 14-16 ágúst verður fjölskylduhátiðin haldin, hún verður haldin í borgarfirðinum, í félagsheimilinu þar sem fyrsta hjálp 2 var haldin, (btw man ekkert hvað þetta heitir)

veit ekki meira í bili, en ég hvet alla til að taka þessa helgi frá, þetta verður ábyggilega bara gaman

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2009 08:49:21 / Helen

Útbúnaðarlisti

Nokkrir punktar fyrir Fjallamennsku 1

 

Þessi listi er miðaður við ferðir við erfiðar aðstæður.

  • Bakpoki - þarf að rúma útbúnaðinn > 60L en er hentugur til dagsferða. Gott er að hafa svartan ruslapoka ofaní sem dótið er svo sett í svo það verði ekki blautt.
  • Svefnpoki: hlýjan poka - helst gefinn upp fyrir -10° eða meira því það getur jafnvel orðið kalt í skálum að vetrarlagi.
  • Dýna: Ekki nauðsynleg í skála en getur verið gott að hafa, sérstaklega ef svefnpoki er lélegur eða rakt í skálanum.
  • Skór: Í stífari kantinum sem hægt er að setja brodda á. Plastskór (tveggja laga) eða háfjallaskór (eitt lag) eru bestir í svona ferðir.
  • Broddar: Þurfa að passa á skóna, ólabroddar ef skórnir eru mjúkir. Stilla broddana heima. Ólabroddar eru mun leiðinlegri í umgengni en smelltir.

Útbúnaður

  • Áttaviti
  • Kort
  • Höfuðljós
  • Snjóflóðaýlir
  • Skíðagleraugu (koma oft að góðum notum í vondu veðri
  • Sjúkragögn
  • Mataráhöld
  • Eldspýtur
  • Hitabrúsi með heitu vatni
  • Vasahníf
  • Klósettpappír
  • Sameiginlegt: Prímus, eldsneyti, kerti, SKÓFLA

Klifurútbúnaður

  • Ísexi (tvær klifuraxir í ísklifur / ein stór í göngu)
  • Klifurbelti
  • Átta
  • 2 læstar karabínur
  • 2 slingi
  • 2 prússikbönd
  • Sameiginlegt: Lína og snjóakkeri (t.d. deadman)

Föt

Hér verður hver að meta hvað hentar best og hverju hann hefur aðgang að. Eftirfarandi hefur reynst vel;

  • Utanyfirstakkur með öndun
  • Utanyfirbuxur með öndun
  • Góð húfa
  • Auka húfa (eða lambúshetta)
  • Vettlingar
  • Auka vettlingar
  • Kragi
  • Flíspeysa / ullarpeysa - þykk
  • Buxur (t.d. flís- eða göngubuxur
  • Ullarnærbolur / gerviefnabolur
  • Ullar-síðar / gerviefni
  • Aukapeysu eða hlýjan bol
  • Ullarsokka sem eru mjúkir svo menn fái síður hælsæri
  • Auka ullarsokka
  • Nærbuxur, helst ekki bómull
  • Auka nærjur
  • Brjóstarhaldari fyrir þá sem þurfa - ekki bómull
  • Legghlífar

Matur

Eitthvað gott, orkumikið, fljótlegt og létt að bera. Muna eftir heitu drykkjunum og súpunum. Þurrmaturinn er góður. Hnetur, rúsínur og súkkulaði er kraftmikið göngusnarl.


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.05.2009 19:54:50 / Helen

Fjallamennska 1

    Það verður bókleg fjallamennska 1 fyrir þá sem eiga eftir Fjallamennsku 1 á miðvikudaginn kl hálf 8. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2009 23:07:27 / Inger

PADI


  Sæl öll saman

  Við höfum tekið okkur nokkur saman og ákveðið að taka PADI köfunarprófið núna á komandi vikum/mánuðum. Verð fyrir prófið er 60.000 en við erum að vonast eftir að fá hópafslátt ef við erum nógu mörg. Nú þegar eru komnir um 9 manns en gaman væri ef að fleiri myndu slást í för.

 Endilega kommentiði  á síðuna ef þið viljið og ætlið að vera með, því að það verður að vera á hreinu þegar skráning hefst og mikilvægt að enginn bakki út á síðustu stundu !!!

    Inger - sem mun ekki taka í höndina á sjóreknu líki þegar hún kafaði eftir því :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

22.04.2009 23:28:18 / Helen

Dagsetning

Siggi undanrenna kíkti á nýliðafundinn í kvöld og sagði að það væri komin ný dagsetning:

8.-10. maí.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 10:14:21 / Helen

Fjallamennska 1

Til þeirra sem eiga fjallamennsku 1 eftir þá er kominn hugmynd að dagssetningu sem er 15-17maí. endilega sendið mér mail og látið vita hvort þið komist...
Siggi Undanrenna: 
prentdrekinn@gmail.com

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Á döfinni
Á döfinni:

18.apríl: útkallsæfing fyrir Ársæl
22. apríl: Tetra fjarskipti
29. apríl:  síðasti fundur vetrarins